Um Okkur

Folda Ferðir ehf er lítið fjölskyldufyrirtæki sem leggur metnað sinn í að bjóða upp á vandaðar og persónulegar hópferðir til Færeyja og Skotlands. Við leggjum áherslu á gæði, öryggi og góða upplifun þar sem hver hópur fær okkar fulla athygli – frá fyrstu hugmynd að ógleymanlegri ferð.

Folda Ferðir sérhæfir sig í að skipuleggja hópferðir fyrir 15 manns og fleiri og leggur áherslu á að ferðirnar henti öllum, hvort sem um er að ræða vina-, félaga- eða fyrirtækjahópa, afmæli, starfsferðir eða önnur tilefni. Allar ferðir eru sniðnar að þörfum hópsins með áherslu á þægindi, góðan félagsskap og einstaka upplifun.

Fyrirtækið byggir á áratuga reynslu í ferðamennsku, meðal annars í Skotlandi frá árinu 2001 í samstarfi við Simpliciter, sem og frumkvöðlastarfi Færeyjaferða Hjálmars Árnasonar. Þessi þekking og ástríða fyrir áfangastöðunum skilar sér í ferðunum – þar sem við deilum því besta sem Færeyjar og Skotland hafa upp á að bjóða, í öruggum höndum og góðum félagsskap.

Hafa Samband