Hópferð til Færeyja – vönduð upplifun í góðum félagsskap

Við hjá Folda Ferðum ehf erum sérfræðingar í skipulagningu hópferða til Færeyja.

Sérsníðum 4ra til 5 daga, eða lengri, hópferðir fyrir hópa af ýmsum stærðum og tilefnum.

Folda Ferðir ehf byggir á reynslu í ferðamennsku í Skotlandi og víðar frá árinu 2001 og frumkvöðlastarfi Færeyjaferða Hjálmars Árnasonar sem hefur kynnt Færeyjar sem áfangastað fyrir Íslendingum um árabil.

Um Færeyjar

Hinar yndislegu Færeyjar taka á móti okkur með dramatískri fegurð og nátturúperlum, menningu og yndislegu fólki sem mun láta engan ósnórtin. Færeyingar eru um 53.000 talsins og eru einstaklega gestrisnir og taka ávallt vel á móti Íslendingum. Eyjarnar eru 18 talsins sem liggja á norðanverðu Atlantshafi, miðja vegu milli Íslands og Skotlands.

Landslag eyjanna einkennist af bröttum klettabeltum, djúpum fjörðum og víkum, fagurgrænum engjum og hlíðum. Eyjarnar búa sannarlega yfir einskærri náttúrufegurð Þar sem lítil falleg þorp lífga upp náttúruna, mannlífið og menningin á eyjunum er einstakt.

Höfuðstaðurinn Þórshöfn þar sem búa um 22.000 manns er stórskemmtilegur staður að heimsækja sem og Klaksvík sem er nærst særsti bærinn. Færeyingar er frábærir gestgjafar, og heimsókn þangað er ávísun á óvenjulega og heillandi skemmtun sem verður ógleymanleg undir styrkri fararstjórn Folda Ferða. Þetta er ferð fyrir hópa sem vilja sérsniðna vandaða dagskrá, góða samveru, upplifun, öfluga fararstjórn og ógleymanlegar minningar.

Sérsniðnar hópferð fyrir þinn hóp til Færeyja.

Starfsmenn Folda Ferða setja saman ferð til Færeyja að ykkar þörfum.

Hafið samband til að fá nánari kynningu og upplýsingar um hópferðir og verðtilboð fyrir þinn

Dæmi um ferð til Færeyja

Next
Next

Skotland